Entry: Haustið komið Tuesday, October 02, 2007



Góðan daginn,

Þá er sumarfríið mitt á enda og ný blogfærsla að líta dagsins ljós.

En ástæðan fyrir því að ég bloga í dag er samt skemmtileg frétt sem ég sá í RÚV fréttunum. Þar var talað um að fólk vill ekki kaupa svört eða lituð svið. Einungis hvít!

Erum við tala um að kynþáttafordómar eða hvað! Og að þeir komi fram við hin ótrúlegustu tækifæri! Já, jafnvel í innkaupum venjulegt fólks reynist fólk vera með fordóma. Venjulegt fólk sem reynist svo vera mestu rasistar! Alveg ótrúlegt. Ég geri ráð fyrir að bændasamtökin geri allt vitlaust núna og bendi á meinta mismunun kinda af öðrum lit en hvít!

Nei, nei, ég er bara að rugla, en fannst þessi frétt frekar fyndin :=) ekki nóg með að tala um svið heldur mismunandi liti! Það er greinilega gúrkutíð í fréttum.  

Reyndar er ég farinn að hallast að því að blog sé starf námsmannsins sem nennir ekki að læra og notar hverja afsökun til að gera eitthvað annað. Þess vegna hugsa ég að ég taki einnig vetrarfrí frá bloginu og vísa þá á

www.myspace.com/studmundur

þar til síðar,

Stuðmundur

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments