Entry: sumarfrí Wednesday, May 09, 2007



Góðan daginn,

Ég fór í bíó fyrir skemmstu. Mig langaði að fara á hryllingsmynd og láta mér bregða. Því varð myndin The Messengers fyrir valinu. Já, mig langaði í spennu en hvað fékk maður? Jú, ekkert! Þessi mynd er alveg ömurleg, manni brá ekki einu sinni, fékk mest svona smá kjánahroll! Þessi mynd fær 0 stjörnur og í guðanna bænum forðist þessa mynd!

Maggi Tóka er eitthvað að reyna að vera fyndinn þessa dagana og er búin að gera stuttmynd með mér í aðalhlutverki. Myndina má sjáhérna.

Svo er komið vor í mann og sumarið á næsta leiti. Á sumrin fer fólk í sumarfrí og hefur eitthvað betra að gera en að lesa blog. Þess vegna ætla ég að taka mér sumarfrí frá blogi. Ég mun kannski bloga við og við, svona ef veður eru vond eða eitthvað skemmtilegt er að gerast.

Allavega,

Nóg í bili og sé ykkur í haust.

Stuðmundur

P.s. ég keypti mér farmiða til Eyja um verzló í dag, gaman gaman J

   3 comments

Þóra Elísabet
May 26, 2007   03:18 AM PDT
 
Heyrðu! Maður tekur sér ekkert frí! Blogg er ekki vinna heldur lífsstíll!
Stuðmundur
May 14, 2007   05:49 PM PDT
 
Said but true en kem sterkur inn þegar sól fer að halla ;)
HH
May 11, 2007   10:01 PM PDT
 
'A ég að trúa að aðal bloggarinn sé farinn í sumarfrí- þori að veðja að þú færð strax fráhvarfseinkenni miðað við hvað þú hefur verið duglegur hingað til ! ;)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments