Entry: fólk Thursday, May 03, 2007



Góðan daginn,

Fólk er fyndið. Það er einföld staðreynd. Fólk gefur samt frá sér mismunandi áru. Sumir gefa frá sér jákvæða áru, aðrir fá neikvæða og enn aðrir eru bæði með pirrandi áru, framkomu og útliti og enn aðrir eru bara asnalegir. Nokkuð er um slíkt fólk í ræktinni. En ég læt það ekki pirra mig heldur hlæ ég dátt innra með mér. Dæmi um þessar týpur eru:

  • He-Man, maður sem er alveg eins vaxinn og He-Man leikfanga kall.
  • Einhver alltof sólbrúnn gervitöffari sem talar gríðarlega hátt við vini sína um hvað hann sé mikill töffari, tekur svo símann sinn með sér í ræktina og talar svo svakalega hátt í hann til að vera töff!
  • Karlmenn sem nota hárblásara til að snyrta á sér hárið eftir sturtu ..... og einnig til að þurrka sér á ýmsum stöðum á líkamanum....!
  • Maðurinn sem gerir einhverjar mjög skrítnar æfingar á teygjusvæðinu í alltof stuttum handbolta stuttbuxum frá 1986.

Ég reyni að vera mjög umburðarlyndur og jákvæður garð fólks .... en skrýtna fólkið er og verður samt alltaf svolítið fyndið ... við eigum að nota það til að gera okkur líf enn skemmtilegra;)

Stuðmundur

p.s. höfundur þessarar greinar  gæti alveg  fallið í þann flokk  sem aðrir hafa gaman að ;)

   0 comments

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments