|
Góðan daginn, Þá er búið að vera ansi langt blog hlé á
manni. Eftir að slappt blog tímabil síðasta sumar þá var ég búinn að ná góðum 6
mánaðaspretti fyrir þetta blog hlé. Utanlandsferðir, gríðarlegar annir í vinnu og
einkalífi hafa valdið þessu, en batnandi manni er best að lifa og frá og með
næstu helgi fæ ég kannski blog bakteríuna aftur. Allavega þá er það helsta sem hefur drifið á
daga mína undan farið að við Bólsstaðarhlíðabúar héldum fyrsta sameiginlega
matarboðið okkar. Þau heppnu sem boðið var í dýrindis kjúkling voru Heiðdís, Þóra
Elísabet og Víðir. Drykkjarföng voru að sjálfsögðu á boðstólnum og voru því
allir hressir. Síðan var bærinn málað, kannski ekki alveg rauður en a.m.k.
bleikur! ;) Annað merkilegt er náttúrlega að Liverpool
sló Chelsea út úr CL. Tær snilld, ekki bara sem Liverpool aðdáandi heldur líka
sem fótboltaaðdáandi því það er alltaf gott að losna við Chelsea ;) Síðan sá ég
AC Milan áðan sundurspila áhuga- og baráttu litla Man. Utd. Menn. 24. Maí
verður því re-play á leiknum úrslitaleiknum frá 2005. Ég bíð spenntur ;) Stuðmundur |
| Leave a Comment: |