Entry: í útlöndum Wednesday, April 18, 2007



Góðan daginn,

Þá er maður mættur til Frankfurt. Flott borg með skemmtilegri blöndu af nýjum og gömlum húsum. Í dag var 25°C hiti hérna og sól ;) frekar jákvætt, svo í kvöld var borðaður kvöldmatur úti í hlýjunni. Mjög jákvætt, sérstaklega miðað við 3°C hita sem er í Reykjavík í dag.

Annars er atburðirnir í Virginia alveg ótrúlegir og hræðilegir. Mjög óhugnanlegt að einhver einmanna nemandi sem hafi verið lagður í einelti og verið allt of mikið í ofbeldisleikjum missi það alveg. Þetta er enn meira óhugnanlegt svona víst maður hefur verið í háskóla í Bandaríkjunum og svo voru skotárásirnar meira að segja í verkfræðibyggingunni....

Óendanlega sorglegt og óhugnanlegt. Alveg eins og 9/11 þá gætu Bandaríkjamenn lært af reynslunni, lagað vopna löggjöfina og annað þess háttar en glætan að það gerist!

Stuðmundur

   1 comments

HuH
April 24, 2007   12:00 AM PDT
 
Búin að steingleyma hvenær þú kemur aftur en eflaust er mjög stutt í það ja ef þú ert ekki bara kominn.

Vonandi að ferðin hafi verið frábær og það verður gaman að heyra ferðasöguna.

Bæjó ! :)

Leave a Comment:

Name


Homepage (optional)


Comments