|
Góðan daginn, Þá er helgin rétt að liða. Ég tók rólega
helgi í þetta skipið, gerði ekkert á föstudaginn en í gærkveldi var pókerkvöld
hjá Fljúgðu Haukur Inc. Í þetta sinn mættu Finnur, Gutti, Maggi, ég og Víðir
heima hjá Víði. Maggi og Finnur enduðu sem sigurvegarar en heppnin var ekki að
elta mig.... spurning hvort hún sé betur varðveitt í eitthvað annað ;) Annars þá er ég síðan að fara til
Frankfurt, Germany á þriðjudagsmorgun. Þar verður stefnan sett á IMEX sýninguna ásamt tveimur hressum vinnufélögum.
Ekki nóg með að ég ætli til Frankfurt, heldur ætla ég að nota tækifærið og
skella mér til Berlin að heimsækja Mike félaga minn. Það verður væntanlega
glatt á hjallanum hjá okkur strákunum og Berlín máluð rauð ;) Við Mike í góðum gír við strendur Flórída árið 2005. Nóg í bili, Stuðmundur |
| maggitoka April 18, 2007 10:59 AM PDT rosalega er þetta hommaleg mynd... | ||
| Leave a Comment: |