|
Góðan daginn, Lýðræði er merkilegt hugtak. Lýðræði virkar
þannig að almenningur kýs ákveðna einstaklinga / flokka til að taka erfiðar
ákvarðanir fyrir restina af fólkinu. Fólk er að sjálfsögðu ekki alltaf ánægt
með ákvarðanir sem teknar eru enda eru skoðanir fólks eins margar og fólk er
margt. Ástæðan fyrir því að lýðræði virkar svona er að almenningur hef ekki
tíma eða tækifæri til að kynna sér allar hliðar mála á meðan við gerum þá kröfu
til stjórnmálamanna að þeir geri það og ef þeir kalli til sérfræðinga til að
hjálpa til við að halda þeim upplýstum. Núna um helgina var dæmi um það þegar stjórnmálamenn
þorðu ekki að taka ákvörðun og settu mál í atkvæðagreiðslu. Í Hafnarfirði var
þátttakan í atkvæðagreiðslunni um framtíð Alcan 80%. Ég hugsa þó að aðeins 10%
af þeim hafi kynnt sér málið, kosti, galla og áhrif til þrautar. Hin 90% hafa
verið fyrirfram mótaða afstöðu, af tilfinningalegum eða persónulegum ástæðum.
Að þessum forendum gefnum hafa í því í raun aðeins 8% Hafnfirðinga tekið
upplýsta ákvörðun fyrir sínu atkvæði. Þess vegna finnst mér mjög bjánalegt að
fara með einstök málefni í kosningar. Stjórnmálamenn eiga að hafa alla burði
til að taka þessa afstöðu, annars hefðum við varla kosið þá og hey, ef okkur
finnst þeir ekki standa sig kjósum við þá einfaldlega ekki aftur næst. Ég veit að í þetta sinn var ég ósammála
niðurstöðu kosninganna og því enn meira andvígur kosningunni. Ég veit því að
dæmið gæti snúist við en þótt málið hafði farið á minn veg er ég samt á því að
svona mál eigi ekki að fara fyrir fólkið, því staðreyndin er að oft þarf að
hafa vit fyrir fjöldanum. Nóg um þetta í bili, Guðmundur Ingi Þorsteinsson |
| Stuðmundur April 4, 2007 05:02 PM PDT Ekki sammála, þetta mál hefði ekki átt að fara í kosningu frekar en önnur. Sérstaklega eftir á þegar 0,6% munur er á báðum fylkingum þá skapar þetta bara enn meiri mun milli fylkinga. Auk þess þá virðist þessi kosning ekki vera bindandi og því ekki hafa neina merkingu! Ekki gáfulegar forsendur það...! | ||
| maggitoka April 4, 2007 12:01 PM PDT auðvitað átti fólkið að kjósa um þetta....umræðana um þetta var mjög virk í hafnafirði, þannig að ég held að það hafi nú vel flestir verið vel upplýstir þegar þeir kusu...held að Dabbi seðló hafi gert útslagið þegar hann varaði við vaxtahækkunum í kjölfar stækkunar... | ||
| Leave a Comment: |