Guðmundur I. Þorsteinsson
March 31st 1980  (Age 29)
Male
Nafn: Guðmundur Ingi Þorsteinsson
Nick: Guggur, Gummi, og Stuðmundur 2500, "G"
Hvar: Bólstaðarhlíðinni Fögru Sími : +354-867-1470
MSN: gith43@hotmail.com
Liðin Mín: U.M.F. Þristur & Liverpool FC
Staða: manager R/L/C
Starf: Ráðgjafi
Leikmaður: Dirk Kyut
Er nammi óhollt? Naturlich
Drykkur: 2x vodka í Redbull en á Redbull er ekki seldur hér svo þá er það Viking!


   

Skrifið í Gestabókina

Vinir og vandamenn
Tókinn
Bylgja úber fagra
Finnur.tk leðurjakka töffari
Haffi harmonic
Þorkell Úlpkell l
KO the kid kit
Lísa Hreina
Ingvar f**king skúlason
Barbarinn
Gascoigne
Óli Rú
Alma Rú
Bóndinn sem hefur aldrei búið í sveit
Þórey Esk
Sjöbbz trompet-fimleika gella
Chip Douglas Pé
Íris Döggz
Róbert J
EinR HróbjartR
Gústi kvennaGULL
hvar er Valli?
Steifen de muscular
Vígþór vígamaður
Sigrún beibs Lalla systir
McVíðir Þórarinsson
Markús duglegasti maður Íslands
Mr. Valgarðsson
Berta Bomba
Lina Langsokkur
Gutti Kjéx
Boggi, sá lúmskastií bransanum
Hugrún Gella
Hjördís Eiðamær
Þóra Elísabet
Einar & Rósa í Stokkhólmi

My Facebook
My MySpace

Ýmislegt skemmtilegt
Atómstöðin
Fótbolti
free nude celeb pics
Slúðrið
Þristurinn - besta lið í heimi
Austurland - best í­ heimi
Casino Guide
Neteller



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


Contact Me
<< December 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
 01 02 03 04 05
06 07 08 09 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31








rss feed



Tuesday, October 02, 2007
Haustið komið

Góðan daginn,

Þá er sumarfríið mitt á enda og ný blogfærsla að líta dagsins ljós.

En ástæðan fyrir því að ég bloga í dag er samt skemmtileg frétt sem ég sá í RÚV fréttunum. Þar var talað um að fólk vill ekki kaupa svört eða lituð svið. Einungis hvít!

Erum við tala um að kynþáttafordómar eða hvað! Og að þeir komi fram við hin ótrúlegustu tækifæri! Já, jafnvel í innkaupum venjulegt fólks reynist fólk vera með fordóma. Venjulegt fólk sem reynist svo vera mestu rasistar! Alveg ótrúlegt. Ég geri ráð fyrir að bændasamtökin geri allt vitlaust núna og bendi á meinta mismunun kinda af öðrum lit en hvít!

Nei, nei, ég er bara að rugla, en fannst þessi frétt frekar fyndin :=) ekki nóg með að tala um svið heldur mismunandi liti! Það er greinilega gúrkutíð í fréttum.  

Reyndar er ég farinn að hallast að því að blog sé starf námsmannsins sem nennir ekki að læra og notar hverja afsökun til að gera eitthvað annað. Þess vegna hugsa ég að ég taki einnig vetrarfrí frá bloginu og vísa þá á

www.myspace.com/studmundur

þar til síðar,

Stuðmundur


Wednesday, May 09, 2007
sumarfrí

Góðan daginn,

Ég fór í bíó fyrir skemmstu. Mig langaði að fara á hryllingsmynd og láta mér bregða. Því varð myndin The Messengers fyrir valinu. Já, mig langaði í spennu en hvað fékk maður? Jú, ekkert! Þessi mynd er alveg ömurleg, manni brá ekki einu sinni, fékk mest svona smá kjánahroll! Þessi mynd fær 0 stjörnur og í guðanna bænum forðist þessa mynd!

Maggi Tóka er eitthvað að reyna að vera fyndinn þessa dagana og er búin að gera stuttmynd með mér í aðalhlutverki. Myndina má sjáhérna.

Svo er komið vor í mann og sumarið á næsta leiti. Á sumrin fer fólk í sumarfrí og hefur eitthvað betra að gera en að lesa blog. Þess vegna ætla ég að taka mér sumarfrí frá blogi. Ég mun kannski bloga við og við, svona ef veður eru vond eða eitthvað skemmtilegt er að gerast.

Allavega,

Nóg í bili og sé ykkur í haust.

Stuðmundur

P.s. ég keypti mér farmiða til Eyja um verzló í dag, gaman gaman J


Thursday, May 03, 2007
fólk

Góðan daginn,

Fólk er fyndið. Það er einföld staðreynd. Fólk gefur samt frá sér mismunandi áru. Sumir gefa frá sér jákvæða áru, aðrir fá neikvæða og enn aðrir eru bæði með pirrandi áru, framkomu og útliti og enn aðrir eru bara asnalegir. Nokkuð er um slíkt fólk í ræktinni. En ég læt það ekki pirra mig heldur hlæ ég dátt innra með mér. Dæmi um þessar týpur eru:

  • He-Man, maður sem er alveg eins vaxinn og He-Man leikfanga kall.
  • Einhver alltof sólbrúnn gervitöffari sem talar gríðarlega hátt við vini sína um hvað hann sé mikill töffari, tekur svo símann sinn með sér í ræktina og talar svo svakalega hátt í hann til að vera töff!
  • Karlmenn sem nota hárblásara til að snyrta á sér hárið eftir sturtu ..... og einnig til að þurrka sér á ýmsum stöðum á líkamanum....!
  • Maðurinn sem gerir einhverjar mjög skrítnar æfingar á teygjusvæðinu í alltof stuttum handbolta stuttbuxum frá 1986.

Ég reyni að vera mjög umburðarlyndur og jákvæður garð fólks .... en skrýtna fólkið er og verður samt alltaf svolítið fyndið ... við eigum að nota það til að gera okkur líf enn skemmtilegra;)

Stuðmundur

p.s. höfundur þessarar greinar  gæti alveg  fallið í þann flokk  sem aðrir hafa gaman að ;)

Wednesday, May 02, 2007
langt um liðið

Góðan daginn,

Þá er búið að vera ansi langt blog hlé á manni. Eftir að slappt blog tímabil síðasta sumar þá var ég búinn að ná góðum 6 mánaðaspretti fyrir þetta blog hlé. Utanlandsferðir, gríðarlegar annir í vinnu og einkalífi hafa valdið þessu, en batnandi manni er best að lifa og frá og með næstu helgi fæ ég kannski blog bakteríuna aftur.

Allavega þá er það helsta sem hefur drifið á daga mína undan farið að við Bólsstaðarhlíðabúar héldum fyrsta sameiginlega matarboðið okkar. Þau heppnu sem boðið var í dýrindis kjúkling voru Heiðdís, Þóra Elísabet og Víðir. Drykkjarföng voru að sjálfsögðu á boðstólnum og voru því allir hressir. Síðan var bærinn málað, kannski ekki alveg rauður en a.m.k. bleikur! ;)

Annað merkilegt er náttúrlega að Liverpool sló Chelsea út úr CL. Tær snilld, ekki bara sem Liverpool aðdáandi heldur líka sem fótboltaaðdáandi því það er alltaf gott að losna við Chelsea ;) Síðan sá ég AC Milan áðan sundurspila áhuga- og baráttu litla Man. Utd. Menn. 24. Maí verður því re-play á leiknum úrslitaleiknum frá 2005. Ég bíð spenntur ;)

Stuðmundur


Thursday, April 26, 2007
komin heim

Góðan daginn,

Þá er maður kominn heill á húfi frá Þýskalandi. Fyrst var tekin róleg vinnuferð í Frankfurt og svo voru götur Berlínar málaðar rauðar. Næturlífið var að sjálfsögðu kannað en síðan gerðist ég svo frægur að fara á Bundesliga leik, Hertha Berlin – Dortmund ásamt 64.000 öðrum. Leikurinn var reyndar frekar bragdaufur og Dortmund vann leikinn Berlínarbúum til lítillar gleði.

Á sunnudaginn fór ég hinsvegar, óvænt, á opnunarleikinn í þýsku NFL deildinni í Amerískum fótbolta. 30.000 manns komu á leikinn og stemming var gríðarlega góð. Reyndar var þetta gríðarlega Amerískt, allir leikmennirnir Bandarískir, þjálfararnir og dómarnir líka bandarískir og gott ef lýsandinn var ekki bara líka frá USA! Ég er nú ekki mikill aðdáandi NFL en ég verð að segja að Ameríkanar eru búnir að gera skemmtilega umgjörð um þetta. Alltaf tónlist og zoom-in á mjög 90, mjög svo kynþokkafullar klappstýrur. Já, Bandaríkjamönnum hefur tekist að gera NFL þannig að jafnvel þeir sem engan áhuga hafa geta haft gaman að J mjög jákvætt

En annars er alltaf gott að koma heim frá útlöndum líka. Ísland, best í heimi.

Stuðmundur

Wednesday, April 18, 2007
í útlöndum

Góðan daginn,

Þá er maður mættur til Frankfurt. Flott borg með skemmtilegri blöndu af nýjum og gömlum húsum. Í dag var 25°C hiti hérna og sól ;) frekar jákvætt, svo í kvöld var borðaður kvöldmatur úti í hlýjunni. Mjög jákvætt, sérstaklega miðað við 3°C hita sem er í Reykjavík í dag.

Annars er atburðirnir í Virginia alveg ótrúlegir og hræðilegir. Mjög óhugnanlegt að einhver einmanna nemandi sem hafi verið lagður í einelti og verið allt of mikið í ofbeldisleikjum missi það alveg. Þetta er enn meira óhugnanlegt svona víst maður hefur verið í háskóla í Bandaríkjunum og svo voru skotárásirnar meira að segja í verkfræðibyggingunni....

Óendanlega sorglegt og óhugnanlegt. Alveg eins og 9/11 þá gætu Bandaríkjamenn lært af reynslunni, lagað vopna löggjöfina og annað þess háttar en glætan að það gerist!

Stuðmundur


Sunday, April 15, 2007
framundan

Góðan daginn,

Þá er helgin rétt að liða. Ég tók rólega helgi í þetta skipið, gerði ekkert á föstudaginn en í gærkveldi var pókerkvöld hjá Fljúgðu Haukur Inc. Í þetta sinn mættu Finnur, Gutti, Maggi, ég og Víðir heima hjá Víði. Maggi og Finnur enduðu sem sigurvegarar en heppnin var ekki að elta mig.... spurning hvort hún sé betur varðveitt í eitthvað annað ;)

Annars þá er ég síðan að fara til Frankfurt, Germany á þriðjudagsmorgun. Þar verður stefnan sett á IMEX sýninguna ásamt tveimur hressum vinnufélögum. Ekki nóg með að ég ætli til Frankfurt, heldur ætla ég að nota tækifærið og skella mér til Berlin að heimsækja Mike félaga minn. Það verður væntanlega glatt á hjallanum hjá okkur strákunum og Berlín máluð rauð ;)


Við Mike í góðum gír við strendur Flórída árið 2005.

Nóg í bili,

Stuðmundur


Thursday, April 12, 2007
ágætis búbót

Studmundur

Góðan og blessaðan daginn,

Ágúst “kvennagull” Fannar kom í heimsókn um daginn að horfa á fótbolta. Þá rifjaði hann upp veðmál okkar í milli frá 2005 frá undanúrslita viðureign LFC og Chelsea í meistaradeildinni. Veðmálið hljóðaði upp á 2 kassa af bjór og flösku og ég vann J ég hafði algerlega gleymt þessu svo þetta verður jákvæð búbót. ;)

Núna er samt sú aðstaða komin upp að Liverpool og Chelsea eru, 2 árum seinna, ad mætast aftur í undanúrslitum meistaradeildarinnar. Ég bauð því Gústa að endurtaka veðmálið. Gústi var ekki maður í þetta, enda greinilega viss um að Liverpool vinnur J en í staðinn lagði hann til ferð á leikinn. Ég held að það sé glæsileg hugmynd og núna er bara að redda miðum ;)

En áfram Liverpool ;)

Stuðmundur


Wednesday, April 11, 2007
páskarnirGóðan daginn,

Gdan daginn,

Ta er aevintýraheimur Studmundar maettur aftur til leiks eftir sma paskafri. Allavega var paskafriid mjog ljúft. Ég hélt heim a leid austur a Hallormsstad Tar sem madur var i gifurlega godu yfirlaeti i fadmi fjolskyldunnar. Reyndar var lika sma road trip ferd a Akureyri, Tar sem ég hafdi verid radinn ljosmyndari fyrir ibúa Blaskoga 1, Teirra Kristjan og Steinars sem voru ad fara ad keppa i Fitness.

Allavega Ta var Tetta mjog skemmtileg ferd. Strakarnir foru med engar vaentingar til leiks, enda mun minna undirbúnir en adrir keppendur. Adalmalid var ad vera med gott tan og geta verid stoltur af Tvi. Tegar Teiri maettu a stadinn voru Teir svo allra manna ljosastir og Turftu ad byrja a ad kaupa auka birgdir af brúnkukremi, allur tan undirbúningur fyrir ekkert! ;)

Ta komust Teir ad Tvi ad Teir voru skradir til leiks i unglingaflokki og vid Tad foru nú vaentingarnar sma upp. Tetta endadi allavega Tannig ad Steinar vard i 2. saeti en Kristjan brodir minn i 3. saeti, honum til litillar anaegju. Reyndar var keppnin milli Steinars og Kristjans Tad hord ad Teir voru med jafn morg stig, en Tar sem Steinar vard ofar i samanburdi vann hann.



KB Kroyer – Litli brodir ordinn staerri en madur a alla kanta, meira ad segja 1 cm haerri!

Nog i bili,

Studmundur


Tuesday, April 03, 2007
lýðræði.........

Góðan daginn,

Lýðræði er merkilegt hugtak. Lýðræði virkar þannig að almenningur kýs ákveðna einstaklinga / flokka til að taka erfiðar ákvarðanir fyrir restina af fólkinu. Fólk er að sjálfsögðu ekki alltaf ánægt með ákvarðanir sem teknar eru enda eru skoðanir fólks eins margar og fólk er margt. Ástæðan fyrir því að lýðræði virkar svona er að almenningur hef ekki tíma eða tækifæri til að kynna sér allar hliðar mála á meðan við gerum þá kröfu til stjórnmálamanna að þeir geri það og ef þeir kalli til sérfræðinga til að hjálpa til við að halda þeim upplýstum.

Núna um helgina var dæmi um það þegar stjórnmálamenn þorðu ekki að taka ákvörðun og settu mál í atkvæðagreiðslu. Í Hafnarfirði var þátttakan í atkvæðagreiðslunni um framtíð Alcan 80%. Ég hugsa þó að aðeins 10% af þeim hafi kynnt sér málið, kosti, galla og áhrif til þrautar. Hin 90% hafa verið fyrirfram mótaða afstöðu, af tilfinningalegum eða persónulegum ástæðum. Að þessum forendum gefnum hafa í því í raun aðeins 8% Hafnfirðinga tekið upplýsta ákvörðun fyrir sínu atkvæði.

Þess vegna finnst mér mjög bjánalegt að fara með einstök málefni í kosningar. Stjórnmálamenn eiga að hafa alla burði til að taka þessa afstöðu, annars hefðum við varla kosið þá og hey, ef okkur finnst þeir ekki standa sig kjósum við þá einfaldlega ekki aftur næst.

Ég veit að í þetta sinn var ég ósammála niðurstöðu kosninganna og því enn meira andvígur kosningunni. Ég veit því að dæmið gæti snúist við en þótt málið hafði farið á minn veg er ég samt á því að svona mál eigi ekki að fara fyrir fólkið, því staðreyndin er að oft þarf að hafa vit fyrir fjöldanum.

Nóg um þetta í bili,

Guðmundur Ingi Þorsteinsson


Next Page