Guðmundur I. Þorsteinsson
March 31st 1980  (Age 29)
Male
Nafn: Guðmundur Ingi Þorsteinsson
Nick: Guggur, Gummi, og Stuðmundur 2500, "G"
Hvar: Bólstaðarhlíðinni Fögru Sími : +354-867-1470
MSN: gith43@hotmail.com
Liðin Mín: U.M.F. Þristur & Liverpool FC
Staða: manager R/L/C
Starf: Ráðgjafi
Leikmaður: Dirk Kyut
Er nammi óhollt? Naturlich
Drykkur: 2x vodka í Redbull en á Redbull er ekki seldur hér svo þá er það Viking!


   

Skrifið í Gestabókina

Vinir og vandamenn
Tókinn
Bylgja úber fagra
Finnur.tk leðurjakka töffari
Haffi harmonic
Þorkell Úlpkell l
KO the kid kit
Lísa Hreina
Ingvar f**king skúlason
Barbarinn
Gascoigne
Óli Rú
Alma Rú
Bóndinn sem hefur aldrei búið í sveit
Þórey Esk
Sjöbbz trompet-fimleika gella
Chip Douglas Pé
Íris Döggz
Róbert J
EinR HróbjartR
Gústi kvennaGULL
hvar er Valli?
Steifen de muscular
Vígþór vígamaður
Sigrún beibs Lalla systir
McVíðir Þórarinsson
Markús duglegasti maður Íslands
Mr. Valgarðsson
Berta Bomba
Lina Langsokkur
Gutti Kjéx
Boggi, sá lúmskastií bransanum
Hugrún Gella
Hjördís Eiðamær
Þóra Elísabet
Einar & Rósa í Stokkhólmi

My Facebook
My MySpace

Ýmislegt skemmtilegt
Atómstöðin
Fótbolti
free nude celeb pics
Slúðrið
Þristurinn - besta lið í heimi
Austurland - best í­ heimi
Casino Guide
Neteller



If you want to be updated on this weblog Enter your email here:


Contact Me
<< November 2009 >>
Sun Mon Tue Wed Thu Fri Sat
01 02 03 04 05 06 07
08 09 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30








rss feed



Monday, April 02, 2007
það eru að koma páskar....

Góðan daginn,

Ég held ég hafi nú ekki gert neitt sérstakt í tilefni afmælisins míns síðan ég var í grunnskóla svo það var kannski kominn tími til. Ég hélt því þrusu matarboð á laugardaginn í bara ansi góðri stemmingu Stemmingin var meira að segja svo góð að ekki var komið niður í bæ fyrr en um 02:30, en það var nú bara gaman að því ;)

Annars eru að koma páskar, ótrúlegt en satt. Þess vegna eru flestir nemendur og kennarar landsins komnir í páskafrí en við hitt vinnandi fólkið þarf að bíða í “heila” 2 daga í viðbót, tómt rugl! ;)

Ég ætla annars að skella mér austur í heimabyggð um páskanna. Reyndar er það ekki eina ferðalagið sem verður ráðist í því þeir rugludallarnir í Bláskógum 1, Kristján Kröyer bróðir minn og Steinar, hafa skráð sig í FITNESS mót á Akureyri á laugardaginn. Því er fyrirhugað roadtrip frá Egilsstöðum á Akureyri. Strákarnir eru búnir að duglegir að æfa “allar” þrjár vikurnar síðan þeir ákváðu að skella sér og “alla” vikuna síðan þeir fengu sér í glas. Já, mjög duglegir strákar og ég bíð spenntur eftir að sjá hvernig þeim gengur að halda uppi heiðri austurlands etja kappi við digra menn að sunnan.

En nóg í bili,

Stuðmundur


Sunday, April 01, 2007
dagurinn í dag

Góðan daginn,

Þá er maður mættur til Frankfurt. Flott borg með skemmtilegri blöndu af nýjum og gömlum húsum. Í dag var 25°C hiti hérna og sól ;) frekar jákvætt, svo í kvöld var borðaður kvöldmatur úti í hlýjunni. Mjög jákvætt, sérstaklega miðað við 3°C hita sem er í Reykjavík í dag.

Annars er atburðirnir í Virginia alveg ótrúlegir og hræðilegir. Mjög óhugnanlegt að einhver einmanna nemandi sem hafi verið lagður í einelti og verið allt of mikið í ofbeldisleikjum missi það alveg. Þetta er enn meira óhugnanlegt svona víst maður hefur verið í háskóla í Bandaríkjunum og svo voru skotárásirnar meira að segja í verkfræðibyggingunni....

Óendanlega sorglegt og óhugnanlegt. Alveg eins og 9/11 þá gætu Bandaríkjamenn lært af reynslunni, lagað vopna löggjöfina og annað þess háttar en glætan að það gerist!

Stuðmundur


Saturday, March 31, 2007
Ég get allt

Góðan daginn,

Ég get allt.... nú og af hverju er það? Jú, því eins og skáldið og frægi maður ársins sagði um árið, “ég get allt því ég á afmæli í dag ;) Já, ég er reyndar ekki að verða tvítugur heldur er kallinn bara orðinn 27 ára gamall og tíminn farinn að tifa. Ef ég væri í Manager myndi ég meira að segja hugsa mig tvisvar um að kaupa leikmann á þessum aldri ;)

Í tilefni dagsins ætla ég svo að bjóða velvöldu fólki í mat og drykk til að halda upp á áfangann. Matseðillinn hljómar upp á Hægeldaða fyllta kalkúnabringu með sætum kornflekskartöflum. Ég hef aldrei eldað þennan rétt en myndin leit vel út svo þetta verður bara gaman

Stuðmundur

p.s. Ég vil þakka Peter Crouch og öðrum leikmönnum Liverpool fyrir 4-1 afmælisgjöfina yfir Arsenal, Jätte bra ;)


Wednesday, March 28, 2007
Spinning og Seagal

Góðan daginn,

Ég hef nú löngum þótt frekar þrjóskur og að standa á minni skoðun, svona næstum sama hvað. Allavega þá varð ég svo frægur að fara í spinning árið 2004. Eftir þann viðbjóð var ég búinn að heita sjálfum mér að fara aldrei aftur í spinning.

Um helgina fékk ég svo áskorun af skella mér í ákveðin spinning tíma. Þess vegna gerðist ég áðan svo stórtækur að skella mér í spinning með Þórey frænku. Þetta var ekkert venjulegt spinning heldur voru einhverjar ægilegar æfingar á eftir. Ég hélt að ég væri í fínu formi eftir veturinn, en viti menn ég var bara ekkert að höndla þetta, og sérstaklega þessar æfingar. Já, þetta var ekkert grín og ég held að Þórey hafi meira að segja staðið sig betur en ég.... annars held ég að meira að segja Arnold í toppformi hafi nú lent í veseni í þessum tíma..... þetta var ekkert grín...

Annað merkilegt við þetta var að eftir þennan spinning tíma nennti ég ekki að fara að horfa á landsleikinn Spán vs. Ísland, og það hafði nú einhvern tíman þótt saga til næsta bæjar.....

En svona í framhaldi af umræðunni um hvað gömlu hasarmynda hetjurnar væru orðnar gamlar þá eru fáir sem vita það en Steven Seagal er líka frægur tónlistarmaður. Já, kappinn er greinilega alveg með þetta


Stuðmundur


Tuesday, March 27, 2007
300

Góðan daginn

Ég varð svo frægur að fara í bíó á sunnudagskvöldið. Fyrir valinu var myndin 300. Fyrir þá sem hafa misst af þessari mynd, þá byggir hún á goðsögninni um Leonidas konung Spartverja. Persar voru komnir með 150.000 hermenn til að leggja Evrópu undir sig. Leonidas hafi fengið spádóm um að annaðhvort myndi konungur Spartverja deyja eða borgin falla. Hann fer því með 300 af sínum bestu hermönn að Thermopylae (eldskarðið). Þar verjast svo þessir 300 Spartverjar ásamt 1400 Grikkjum þessum 150.000 mönnum.

Allavega þá er þessi mynd tær snilld og langt síðan ég hef séð annað eins. Ekki er dauðstund í myndinni og bardagaatriðin eru bæði nýstárlega, flott og tilkomumikil. Þótt um hálfgerða “epic” stríðsmynd sé að ræða, þá er hún jafnmikið fyrir stelpur og stráka. Því fyrir stelpur þá hefur varla komið fram mynd með jafn mikið af magavöðum, öxlum og berum brjóskössum, og að sjálfsögðu baðaðir í blóði.

Já, myndin fær 4 ½ stjórnu. Erótísk nautnastund fyrir konur og bardagamynd fyrir stráka.

Annars hefur myndin samt fengið mismunandi dóma og líst sem listrænt stórvirki og sagnfræðilegt hryðjuverk. Ég fór því á stúfana og kynnti mér söguna aðeins. Mér sýnist nú að þótt ýmsu sé breytt þá sé nú flest sem skiptir máli nokkuð rétt. Reyndar er Spartverjum líst sem bjargvættum lýðræðis. En í raun voru þeir smá þjóð sem héldu hundruðum þúsunda mönnum sem þrælum og drápu þá við minnsta tilefni. En ég mæli samt með bíóferð á 300.

Stuðmundur


Monday, March 26, 2007
traktor

Góðan daginn.

Enn á ný er kominn mánudagur, helgin liðin og svona. Þar sem ég keypti spennandi fæðubótaefni, Anator P70 í byrjun mars, var ég var búinn að heita sjálfum mér að vera rólegur í mars og djamma ekkert fyrr en á afmælinu mínu. Það hefur ekki gengið sem skildi og hef ég farið út um allar helgar í mars nema eina.... góður árangur það ;)

En að öðru. Þegar ég var á 1. ári í menntaskóla, þá var nemandi með mér í skóla sem var kallaður Bjössi og var kenndur við traktor. Ástæðan fyrir því að Bjössi var kallaður Bjössi traktor var sú að hann var úr sveit og var ekki að safna sér fyrir bíl eða einhverju lífsgæðakapphlaupsdóti heldur traktor! Já, hann Bjössi talaði ekki mikið en þegar hann opnaði munninn mátti ganga út frá því vísu að hann myndi byrja að tala um traktora, mjög spennandi!

Ástæðan fyrir því að ég er að um Bjössa núna er að ég rakst á athyglisverða (óhugnanlega)frétt um daginn. Kona nokkur í Pakistan sótti sér læknisaðstoð þegar hún var búin að finna fyrir miklum verk um tíma. Við nánari rannsókn kom í ljós að búið var að fjarlægja annað nýra konunnar. Þegar málið var rannsakað kom í ljós að maður konunnar hafi fengið lækni til að fjarlægja hægra nýra konunnar þegar hún fór til læknis út af einhverju allt öðru. Og hvað gerði maðurinn við nýrað? Jú, hann seldi það til að kaupa traktor! Já, traktor! Geðveikur heimur eða hvað......!

Við fyrstu sýn má halda að Bjössi og einhver pakistani hafi ekki mikið sameiginlegt en áhuginn á traktorum er greinilega út um allan heim! En vonandi leiðist Bjössi ekki út á þessa braut þrátt fyrir áhugann á traktorum!

En nóg í bili,

Stuðmundur


Thursday, March 22, 2007
Fleiri staðreyndir

Góðan daginn,

Ég hef nú aldrei verið mikill sveitamaður í mér, lítið verið að fást við dýr, öðrum en hundum og köttum. Í framhaldi af því er ég alls ekki mikill hestamaður, og hef heft smá fordóma gagnvart hestamönnum. Hestamenn eru, upp til hópa, helteknir af þessum merkilegum dýrum og tala um lítið annað. Svo halda hestamenn því fram að hestaleikar séu íþróttir... tómt rugl... og hestamenn hafa meira að segja átt íþróttamann ársins... ég veit ekki hvort það sagði meira um hina íþróttamennina eða hvað! Ég reyndar fór (í fyrsta skipti) á hestbak fyrir 1 ½ síðan. Það var nú bara gaman svo fordómar mínir gagnvart hestamönnum minnkuðu aðeins.

Síðan rak ég augun í eftir farandi frétt “24 ára gamall pólverji, Robert R var bitinn til dauða eftir hann reyndi að róa hestinn sinn. Hesturinn hafi gengið berserksgang eftir að hafa orðið kynferðislega örvaður af nálægri hryssu......” Já, svo eftir allt saman þá höfðu fordómarnir rétt á sér, þetta er greinilega stórhættuleg dýr eftir allt saman ;) og hestar, eins og við mennirnir, láta samskipti við hitt kynið mæta algerum forgangi ;)

Svo er hérna myndin sem ég reyndi að sýna í síðustu viku en gekk ekki.... sem sýnir að ég er flottari en Arnold.....í dag..... en ætli ég verði ekki “aðeins” að bíða þar til ég næ gamla Arnold forminu. Arnold, langbesti stjórnmálamaður heims ;)


Stuðmundur


Wednesday, March 21, 2007
Staðreyndir

Sæl nú!,

Lífið hjá manni gengur nú bara sinn vanagang þessa dagana, sem og endranær. Reyndar varð ég svo frægður í dag að halda, í annað sinn, gestafyrirlestur við Háskóla Reykjavíkur. Í þetta sinn var það í M.S. áfanganum Fasteignastjórnun. Erindið var um fasteignastjórnun í Austurhafnarverkefninu, sem flestir þekkja sem tónlistar- og ráðstefnuhúsið niður við höfn. Hljómar spennandi ekki satt.....!

En að örðu þá eru hérna nokkrar staðreyndir........

  • Fólk hefur samfarir að meðaltali 103 sinnum á ári
  • Grikkir eru duglegastir í rúminu, með 138 skipti árlega
  • Að meðaltali byrjar heimsbyggðin að stunda kynlíf 17.3 ára
  • Meðalmaðurinn hefur átt 9 bólfélaga
  • Næstum helmingur (47%) fólks um allan heim hafa haft óvarin mök án þess að þekkja kynlífssögu bólfélagans
  • 44% fullorðinna segjast ánægð með kynlífið
  • 44% fullorðinna hafa átt einnar nætur gaman
  • Næstum fjórðungur (23%) folks hefur notað titrara við samfarir
  • Algengasti staðurinn til að stunda kynlíf á fyrir utan svefnherbergið er bíllinn

Skemmtilegt ekki satt ;) Svo er spurningin hvort allir lesendur séu sammála þessum staðreyndum.....

Annað merkilegt sem er í fréttum er að í síðustu viku var gerð færsla í gestabókina mína. Það merkilega við þessa staðreynd er sú að þetta var fyrsta færslan í gestabókina í 1 ár, 10 mánuði og 29 daga! Já, gestabækur eru greinilega ekki það heitasta í bransanum, en samt takk fyrir færsluna ;)

Takk fyrir mig

Stuðmundur


Monday, March 19, 2007
Mánudagur

Góðan daginn

Sælt veri fólkið. Þá er, eins og alltaf, kominn mánudagur og helgin liðin allt of fljótt... eins og alltaf.... já, tíminn líður svo hratt að vikan er bara mánudagur og föstudagur... tómt rugl en samt gaman að föstudagurinn er á næsta leiti.... ;)

Annars var þetta afbragðshelgi, rólegt Prison Break maraþon á föstudaginn og við Bólsstaðarhlíðabúar erum þá búin að ná sjónvarpinu. Svo var bara eitt skemmtilegasta djamm ársins á laugardaginn, og langt er síðan ég hef farið á skemmtistað sem hefur spilað aðra eins stuð tónlist eins og var spiluð á Óliver á laugardagskvöldið. Keep it coming!

En svona að einhverju skemmtilegu, þá er alltaf gaman að vera með “lággæða” húmor, þá er allt sem tengist kynlífi eða öðru sem forboðið er alltaf fyndið.


Eins og sjá má er auðvelt að vera fyndinn ef nóg sól er á lofti ;)

Stuðmundur

Saturday, March 17, 2007
goðsagnir

Góðan daginn

Það er kominn laugardagur svo maður getur ekki verið annað en hress og jákvæður. Ég vona að aðrir séu það líka, allt annað er rugl. Veðrið reyndar eitthvað klikkað í dag, brjáluð snjókoma og sól til skiptis.

Allavega að öðru, þá eru margar goðsagnir og þjóðtrúir til sem ganga milli manna. Fræg dæmi um slíkt er óheppni sem fylgir því að brjóta spegil eða sjá svartan kött. Að nýrri goðsögnum má taka dæmi að stelpur (fallegar) hvorki kúki né prumpi. Já, það eru ýmsar goðsagnir til, en flestar alrangar. Og það að stelpur prumpi ekki............


Já, svona er lífið, og stelpur og strákar eiga greinilega við sömu vandamálin ;)

Stuðmundur


Previous Page Next Page