|
|
|
Tuesday, October 02, 2007
Góðan daginn,
Þá er sumarfríið mitt á enda og ný
blogfærsla að líta dagsins ljós.
En ástæðan fyrir því að ég bloga í dag er
samt skemmtileg frétt sem ég sá í RÚV fréttunum. Þar var talað um að fólk vill
ekki kaupa svört eða lituð svið. Einungis hvít!
Erum við tala um að kynþáttafordómar eða
hvað! Og að þeir komi fram við hin ótrúlegustu tækifæri! Já, jafnvel í
innkaupum venjulegt fólks reynist fólk vera með fordóma. Venjulegt fólk sem
reynist svo vera mestu rasistar! Alveg ótrúlegt. Ég geri ráð fyrir að
bændasamtökin geri allt vitlaust núna og bendi á meinta mismunun kinda af öðrum
lit en hvít!
Nei, nei, ég er bara að rugla, en fannst
þessi frétt frekar fyndin :=) ekki nóg með að tala um svið heldur mismunandi
liti! Það er greinilega gúrkutíð í fréttum.
Reyndar er ég farinn að hallast að því að
blog sé starf námsmannsins sem nennir ekki að læra og notar hverja afsökun til
að gera eitthvað annað. Þess vegna hugsa ég að ég taki einnig vetrarfrí frá
bloginu og vísa þá á
www.myspace.com/studmundur
þar til síðar,
Stuðmundur
Wednesday, May 09, 2007
Góðan daginn,
Ég fór í bíó fyrir skemmstu. Mig langaði að
fara á hryllingsmynd og láta mér bregða. Því varð myndin The Messengers fyrir
valinu. Já, mig langaði í spennu en hvað fékk maður? Jú, ekkert! Þessi mynd er
alveg ömurleg, manni brá ekki einu sinni, fékk mest svona smá kjánahroll! Þessi
mynd fær 0 stjörnur og í guðanna bænum forðist þessa mynd!
Maggi Tóka er eitthvað að reyna að vera
fyndinn þessa dagana og er búin að gera stuttmynd með mér í aðalhlutverki. Myndina
má sjáhérna.
Svo er komið vor í mann og sumarið á næsta
leiti. Á sumrin fer fólk í sumarfrí og hefur eitthvað betra að gera en að lesa
blog. Þess vegna ætla ég að taka mér sumarfrí frá blogi. Ég mun kannski bloga
við og við, svona ef veður eru vond eða eitthvað skemmtilegt er að gerast.
Allavega,
Nóg í bili og sé ykkur í haust.
Stuðmundur
P.s. ég keypti mér farmiða til Eyja um
verzló í dag, gaman gaman J
Thursday, May 03, 2007
Góðan daginn, Fólk er fyndið. Það er einföld staðreynd. Fólk gefur samt frá sér mismunandi áru. Sumir gefa frá sér jákvæða áru, aðrir fá neikvæða og enn aðrir eru bæði með pirrandi áru, framkomu og útliti og enn aðrir eru bara asnalegir. Nokkuð er um slíkt fólk í ræktinni. En ég læt það ekki pirra mig heldur hlæ ég dátt innra með mér. Dæmi um þessar týpur eru: - He-Man, maður sem er alveg eins vaxinn og He-Man leikfanga kall.
- Einhver alltof sólbrúnn gervitöffari sem talar gríðarlega hátt við vini sína um hvað hann sé mikill töffari, tekur svo símann sinn með sér í ræktina og talar svo svakalega hátt í hann til að vera töff!
- Karlmenn sem nota hárblásara til að snyrta á sér hárið eftir sturtu ..... og einnig til að þurrka sér á ýmsum stöðum á líkamanum....!
- Maðurinn sem gerir einhverjar mjög skrítnar æfingar á teygjusvæðinu í alltof stuttum handbolta stuttbuxum frá 1986.
Ég reyni að vera mjög umburðarlyndur og jákvæður garð fólks .... en skrýtna fólkið er og verður samt alltaf svolítið fyndið ... við eigum að nota það til að gera okkur líf enn skemmtilegra;) Stuðmundur
p.s. höfundur þessarar greinar gæti alveg fallið í þann flokk sem aðrir hafa gaman að ;)
Wednesday, May 02, 2007
Góðan daginn,
Þá er búið að vera ansi langt blog hlé á
manni. Eftir að slappt blog tímabil síðasta sumar þá var ég búinn að ná góðum 6
mánaðaspretti fyrir þetta blog hlé. Utanlandsferðir, gríðarlegar annir í vinnu og
einkalífi hafa valdið þessu, en batnandi manni er best að lifa og frá og með
næstu helgi fæ ég kannski blog bakteríuna aftur.
Allavega þá er það helsta sem hefur drifið á
daga mína undan farið að við Bólsstaðarhlíðabúar héldum fyrsta sameiginlega
matarboðið okkar. Þau heppnu sem boðið var í dýrindis kjúkling voru Heiðdís, Þóra
Elísabet og Víðir. Drykkjarföng voru að sjálfsögðu á boðstólnum og voru því
allir hressir. Síðan var bærinn málað, kannski ekki alveg rauður en a.m.k.
bleikur! ;)
Annað merkilegt er náttúrlega að Liverpool
sló Chelsea út úr CL. Tær snilld, ekki bara sem Liverpool aðdáandi heldur líka
sem fótboltaaðdáandi því það er alltaf gott að losna við Chelsea ;) Síðan sá ég
AC Milan áðan sundurspila áhuga- og baráttu litla Man. Utd. Menn. 24. Maí
verður því re-play á leiknum úrslitaleiknum frá 2005. Ég bíð spenntur ;)
Stuðmundur
Thursday, April 26, 2007
Góðan daginn,
Þá er maður kominn heill á húfi frá Þýskalandi.
Fyrst var tekin róleg vinnuferð í Frankfurt og svo voru götur Berlínar málaðar
rauðar. Næturlífið var að sjálfsögðu kannað en síðan gerðist ég svo frægur að
fara á Bundesliga leik, Hertha Berlin – Dortmund ásamt 64.000 öðrum. Leikurinn
var reyndar frekar bragdaufur og Dortmund vann leikinn Berlínarbúum til lítillar
gleði.
Á sunnudaginn fór ég hinsvegar, óvænt, á
opnunarleikinn í þýsku NFL deildinni í Amerískum fótbolta. 30.000 manns komu á
leikinn og stemming var gríðarlega góð. Reyndar var þetta gríðarlega Amerískt,
allir leikmennirnir Bandarískir, þjálfararnir og dómarnir líka bandarískir og
gott ef lýsandinn var ekki bara líka frá USA! Ég er nú ekki mikill aðdáandi NFL
en ég verð að segja að Ameríkanar eru búnir að gera skemmtilega umgjörð um
þetta. Alltaf tónlist og zoom-in á mjög 90, mjög svo kynþokkafullar klappstýrur.
Já, Bandaríkjamönnum hefur tekist að gera NFL þannig að jafnvel þeir sem engan
áhuga hafa geta haft gaman að J mjög jákvætt
En annars er alltaf gott að koma heim frá útlöndum
líka. Ísland, best í heimi.
Stuðmundur
Wednesday, April 18, 2007
Góðan daginn,
Þá er maður mættur til Frankfurt. Flott
borg með skemmtilegri blöndu af nýjum og gömlum húsum. Í dag var 25°C hiti
hérna og sól ;) frekar jákvætt, svo í kvöld var borðaður kvöldmatur úti í hlýjunni.
Mjög jákvætt, sérstaklega miðað við 3°C hita sem er í Reykjavík í dag.
Annars er atburðirnir í Virginia alveg
ótrúlegir og hræðilegir. Mjög óhugnanlegt að einhver einmanna nemandi sem hafi
verið lagður í einelti og verið allt of mikið í ofbeldisleikjum missi það
alveg. Þetta er enn meira óhugnanlegt svona víst maður hefur verið í háskóla í
Bandaríkjunum og svo voru skotárásirnar meira að segja í
verkfræðibyggingunni....
Óendanlega sorglegt og óhugnanlegt. Alveg
eins og 9/11 þá gætu Bandaríkjamenn lært af reynslunni, lagað vopna löggjöfina
og annað þess háttar en glætan að það gerist!
Stuðmundur
Sunday, April 15, 2007
Góðan daginn,
Þá er helgin rétt að liða. Ég tók rólega
helgi í þetta skipið, gerði ekkert á föstudaginn en í gærkveldi var pókerkvöld
hjá Fljúgðu Haukur Inc. Í þetta sinn mættu Finnur, Gutti, Maggi, ég og Víðir
heima hjá Víði. Maggi og Finnur enduðu sem sigurvegarar en heppnin var ekki að
elta mig.... spurning hvort hún sé betur varðveitt í eitthvað annað ;)
Annars þá er ég síðan að fara til
Frankfurt, Germany á þriðjudagsmorgun. Þar verður stefnan sett á IMEX sýninguna ásamt tveimur hressum vinnufélögum.
Ekki nóg með að ég ætli til Frankfurt, heldur ætla ég að nota tækifærið og
skella mér til Berlin að heimsækja Mike félaga minn. Það verður væntanlega
glatt á hjallanum hjá okkur strákunum og Berlín máluð rauð ;)  Við Mike í góðum gír við strendur Flórída árið 2005.
Nóg í bili,
Stuðmundur
Thursday, April 12, 2007
Studmundur
Góðan og blessaðan daginn,
Ágúst “kvennagull” Fannar kom í heimsókn um
daginn að horfa á fótbolta. Þá rifjaði hann upp veðmál okkar í milli frá 2005
frá undanúrslita viðureign LFC og Chelsea í meistaradeildinni. Veðmálið hljóðaði
upp á 2 kassa af bjór og flösku og ég vann J ég hafði algerlega gleymt þessu svo þetta verður jákvæð búbót. ;)
Núna er samt sú aðstaða komin upp að
Liverpool og Chelsea eru, 2 árum seinna, ad mætast aftur í undanúrslitum
meistaradeildarinnar. Ég bauð því Gústa að endurtaka veðmálið. Gústi var ekki
maður í þetta, enda greinilega viss um að Liverpool vinnur J en í staðinn lagði hann til ferð á leikinn. Ég held að það sé glæsileg
hugmynd og núna er bara að redda miðum ;)
En áfram Liverpool ;)
Stuðmundur
Wednesday, April 11, 2007
páskarnirGóðan daginn,
Gdan daginn,
Ta er aevintýraheimur Studmundar maettur
aftur til leiks eftir sma paskafri. Allavega var paskafriid mjog ljúft. Ég hélt
heim a leid austur a Hallormsstad Tar sem madur var i gifurlega godu yfirlaeti i
fadmi fjolskyldunnar. Reyndar var lika sma road trip ferd a Akureyri, Tar sem
ég hafdi verid radinn ljosmyndari fyrir ibúa Blaskoga 1, Teirra Kristjan og
Steinars sem voru ad fara ad keppa i Fitness.
Allavega Ta var Tetta mjog skemmtileg ferd.
Strakarnir foru med engar vaentingar til leiks, enda mun minna undirbúnir en adrir
keppendur. Adalmalid var ad vera med gott tan og geta verid stoltur af Tvi. Tegar
Teiri maettu a stadinn voru Teir svo allra manna ljosastir og Turftu ad byrja a
ad kaupa auka birgdir af brúnkukremi, allur tan undirbúningur fyrir ekkert! ;)
Ta komust Teir ad Tvi ad Teir voru skradir
til leiks i unglingaflokki og vid Tad foru nú vaentingarnar sma upp. Tetta endadi
allavega Tannig ad Steinar vard i 2. saeti en Kristjan brodir minn i 3. saeti,
honum til litillar anaegju. Reyndar var keppnin milli Steinars og Kristjans Tad
hord ad Teir voru med jafn morg stig, en Tar sem Steinar vard ofar i samanburdi
vann hann.


KB Kroyer – Litli brodir ordinn staerri en
madur a alla kanta, meira ad segja 1 cm haerri!
Nog i bili,
Studmundur
Tuesday, April 03, 2007
Góðan daginn,
Lýðræði er merkilegt hugtak. Lýðræði virkar
þannig að almenningur kýs ákveðna einstaklinga / flokka til að taka erfiðar
ákvarðanir fyrir restina af fólkinu. Fólk er að sjálfsögðu ekki alltaf ánægt
með ákvarðanir sem teknar eru enda eru skoðanir fólks eins margar og fólk er
margt. Ástæðan fyrir því að lýðræði virkar svona er að almenningur hef ekki
tíma eða tækifæri til að kynna sér allar hliðar mála á meðan við gerum þá kröfu
til stjórnmálamanna að þeir geri það og ef þeir kalli til sérfræðinga til að
hjálpa til við að halda þeim upplýstum.
Núna um helgina var dæmi um það þegar stjórnmálamenn
þorðu ekki að taka ákvörðun og settu mál í atkvæðagreiðslu. Í Hafnarfirði var
þátttakan í atkvæðagreiðslunni um framtíð Alcan 80%. Ég hugsa þó að aðeins 10%
af þeim hafi kynnt sér málið, kosti, galla og áhrif til þrautar. Hin 90% hafa
verið fyrirfram mótaða afstöðu, af tilfinningalegum eða persónulegum ástæðum.
Að þessum forendum gefnum hafa í því í raun aðeins 8% Hafnfirðinga tekið
upplýsta ákvörðun fyrir sínu atkvæði.
Þess vegna finnst mér mjög bjánalegt að
fara með einstök málefni í kosningar. Stjórnmálamenn eiga að hafa alla burði
til að taka þessa afstöðu, annars hefðum við varla kosið þá og hey, ef okkur
finnst þeir ekki standa sig kjósum við þá einfaldlega ekki aftur næst.
Ég veit að í þetta sinn var ég ósammála
niðurstöðu kosninganna og því enn meira andvígur kosningunni. Ég veit því að
dæmið gæti snúist við en þótt málið hafði farið á minn veg er ég samt á því að
svona mál eigi ekki að fara fyrir fólkið, því staðreyndin er að oft þarf að
hafa vit fyrir fjöldanum.
Nóg um þetta í bili,
Guðmundur Ingi Þorsteinsson
|
|
|